Katrín Sigríður
Júlíu Steingrímsdóttir
Frambjóðandi í 4. sæti hjá
Viðreisn í Reykjavík norður

Málefnin
Ég kalla eftir skýrri og afdráttarlausri afstöðu. Við í Viðreisn þurfum að byggja stefnu okkar á raunverulegum lausnum sem hægt er að framkvæma strax í þágu almennings
Efnahagsmál
Besta leiðin til að koma böndum á verðbólgu og háa vexti er innganga í ESB og upptaka evru.
Við eigum að hefja þá vegferð án tafar en þangað til þurfum við að beita öðrum ráðum til að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum.
Heilbrigðismál
Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er lykilatriði.
Það á ekki að skipta máli hvort það sé ríkið eða einkaaðili sem veitir hana.
Bygging nýs Landspítala skiptir verulegu máli en við megum ekki slá öllum umbótum á frest þar til nýr spítali er tekinn í notkun. Bregðast þarf strax við vanda á t.d. bráðamóttöku með afgerandi hætti.
Fæðingarorlof og dagvistun
Fæðingarorlofsmál eru í ólestri og verðandi foreldrar eiga ekki að þurfa að vera á milli ótta og vonar vegna tekna.
Hækka þarf greiðslur, bjóða upp á valkvæða lengingu og sveigjanleg skilyrði.
Skapa þarf lausn á dagvistunarvandanum í nánu samstarfi við sveitarfélögin í eitt skipti fyrir öll.
Útlendingamál
Stjórnvöld þurfa að tryggja fullnægjandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd, en ekki halda þeim í óvissu um langa hríð. Mannúð og skynsemi þurfa að ráða för í þessum málum.
Innflytjendur auðga íslenskt samfélag og við þurfum að halda rétt á spilunum í málaflokknum, auka möguleika til inngildingar og greiða aðgengi að atvinnuleyfum.
Menntamál
Standa þarf með kennurum og byggja upp virðingu fyrir því mikilvæga starfi sem á sér stað í grunn- og leikskólum landsins.
Það voru mistök á sínum tíma að stytta framhaldsskólann niður í þrjú ár og það þarf að endurskoða skipulag skólastigsins með námið og velferð nemendanna í huga.
Auðlindamál
Kvótakerfið virkar vel til að vernda fiskistofna og auka arðsemi en tryggja þarf að þessi auðlind sé í eigu þjóðarinnar, ekki einstaklinga.
Tryggja þarf að auðlindir Íslands nýtist þjóðinni allri, séu sjálfbærar til lengri tíma og að nýting þeirra stuðli að bættum efnahag og bættu atvinnulífi út um allt land.
,,Almenningur í landinu kallar eftir afdráttarlausri afstöðu, skýrri sýn á málefnin og raunverulegum lausnum sem hægt er að ráðast í strax.”
Katrín Sigríður – 15. október 2024
Það sem býr að baki
Viðreisn
- Varaþingmaður frá 2021
- Forseti Uppreisnar 2021-22
- Stjórn Viðreisnar 2021-22
- Trúnaðarstörf frá stofnun Viðreisnar


Menntun og störf
- Klínískur barnasálfræðingur
- Sálfræðingur hjá Samtökunum ’78
- MSc Klínísk sálfræði – HÍ
- BSc Sálfræði – HÍ
Pistlar og þingræður
-
Setjum frelsið á dagskrá
Ég tilheyri þeirri kynslóð sem var mjög ung þegar hrunið átti sér stað. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en miklu síðar hve mikil áhrif það hafði á líf mitt að alast upp á þessum skrýtnu tímum. Ég tel að það hafi valdið því að áhugi minn á stjórnmálum hefur verið óþreytandi allar götur…