Katrín Sigríður
Júlíu Steingrímsdóttir

Frambjóðandi í 4. sæti hjá

Viðreisn í Reykjavík norður

Málefnin

Ég kalla eftir skýrri og afdráttarlausri afstöðu. Við í Viðreisn þurfum að byggja stefnu okkar á raunverulegum lausnum sem hægt er að framkvæma strax í þágu almennings

Efnahagsmál

Besta leiðin til að koma böndum á verðbólgu og háa vexti er innganga í ESB og upptaka evru.

Við eigum að hefja þá vegferð án tafar en þangað til þurfum við að beita öðrum ráðum til að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum.

Heilbrigðismál

Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er lykilatriði.
Það á ekki að skipta máli hvort það sé ríkið eða einkaaðili sem veitir hana.

Bygging nýs Landspítala skiptir verulegu máli en við megum ekki slá öllum umbótum á frest þar til nýr spítali er tekinn í notkun. Bregðast þarf strax við vanda á t.d. bráðamóttöku með afgerandi hætti.

Fæðingarorlof og dagvistun

Fæðingarorlofsmál eru í ólestri og verðandi foreldrar eiga ekki að þurfa að vera á milli ótta og vonar vegna tekna.

Hækka þarf greiðslur, bjóða upp á valkvæða lengingu og sveigjanleg skilyrði.

Skapa þarf lausn á dagvistunarvandanum í nánu samstarfi við sveitarfélögin í eitt skipti fyrir öll.

Útlendingamál

Stjórnvöld þurfa að tryggja fullnægjandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd, en ekki halda þeim í óvissu um langa hríð. Mannúð og skynsemi þurfa að ráða för í þessum málum.

Innflytjendur auðga íslenskt samfélag og við þurfum að halda rétt á spilunum í málaflokknum, auka möguleika til inngildingar og greiða aðgengi að atvinnuleyfum.

Menntamál

Standa þarf með kennurum og byggja upp virðingu fyrir því mikilvæga starfi sem á sér stað í grunn- og leikskólum landsins.

Það voru mistök á sínum tíma að stytta framhaldsskólann niður í þrjú ár og það þarf að endurskoða skipulag skólastigsins með námið og velferð nemendanna í huga.

Auðlindamál

Kvótakerfið virkar vel til að vernda fiskistofna og auka arðsemi en tryggja þarf að þessi auðlind sé í eigu þjóðarinnar, ekki einstaklinga.

Tryggja þarf að auðlindir Íslands nýtist þjóðinni allri, séu sjálfbærar til lengri tíma og að nýting þeirra stuðli að bættum efnahag og bættu atvinnulífi út um allt land.

,,Almenningur í landinu kallar eftir afdráttarlausri afstöðu, skýrri sýn á málefnin og raunverulegum lausnum sem hægt er að ráðast í strax.”

Katrín Sigríður – 15. október 2024

Það sem býr að baki

Viðreisn

  • Varaþingmaður frá 2021
  • Forseti Uppreisnar 2021-22
  • Stjórn Viðreisnar 2021-22
  • Trúnaðarstörf frá stofnun Viðreisnar

Menntun og störf

  • Klínískur barnasálfræðingur
  • Sálfræðingur hjá Samtökunum ’78
  • MSc Klínísk sálfræði – HÍ
  • BSc Sálfræði – HÍ

  • Má ég kveðja á eigin for­sendum?

    Þetta er rosalega einfalt: Við bara bönnum það sem er hættulegt og leyfum það sem er öruggt. Störf alþingismanna væru mjög auðveld ef þetta væri raunin. En ef bannstefnan virkar, hvers vegna deyja þá margir tugir einstaklinga á ári, fyrir aldur fram, vegna vímuefnaneyslu? Þvert á móti hef ég hitt marga notendur vímuefna sem óttast…

    Lestu meira…

  • Ræða um heilbrigðisþjónustu

    Forseti. Ég fagna því að fjarheilbrigðisþjónusta sé hér til umræðu. Við í Viðreisn leggjum ríka áherslu á að nýta stafræna tækni til að tengja betur fagfólk og íbúa í byggðum landsins og stuðla þannig að jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og fjarheilbrigðisþjónusta er þar lykilatriði. Mig langaði aðeins að snerta á stöðu barna í heilbrigðiskerfinu en…

    Lestu meira…

  • Frjálslyndi og mannúð í útlendingamálum

    Forseti. Það er miður að heildarsýn ríkisstjórnarinnar á þennan málaflokk byggi hvorki á sjónarmiðum frjálslyndis né mannúðar. Það er miður að sífellt harðnandi málflutningur í útlendingamálum valdi stóraukinni skautun í íslenskri samfélagsumræðu og það er miður að versnandi staða annarra jaðarsettra hópa í íslensku samfélagi, t.d. eldri borgara og öryrkja, sé sífellt notuð sem barefli…

    Lestu meira…

  • Rjúfum vítahring krónunnar

    Vextir á Íslandi eru með þeim hæstu sem þekkjast á byggðu bóli. Venjuleg fyrirtæki í landinu, sem eru uppistaðan í íslensku atvinnulífi, geta ekki gert skynsamlegar áætlanir fram í tímann. Hvort tveggja skerðir kjör fólksins í landinu. Orsakavaldurinn er íslenska krónan. Talsmönnum hennar er tíðrætt um hversu vel hún getur reynst sem stjórntæki þegar gefur…

    Lestu meira…

  • Flokkurinn sem framkvæmir

    Árið er 2014. Ég er í tíunda bekk í Hagaskóla og stekk niður í smíðastofuna því annar tími féll niður. Ég fékk að búa til mitt fyrsta mótmælaskilti og var á leið á Austurvöll daginn eftir. Tilefnið var að mótmæla því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hafi svikið loforð sitt um að þjóðin fengi loksins…

    Lestu meira…