Dánaraðstoð í Kveik

Mér þótti mjög vænt um að sjá vandaða umfjöllun um dánaraðstoð í Kveik í kvöld. Það er mikilvægt að halda þessari umræðu á lofti enda er lögleiðing dánaraðstoðar í mínum huga mikið mannréttinda- og frelsismál.

Þess vegna lagði ég fram frumvarp um lögleiðingu dánaraðstoðar þegar ég tók sæti á Alþingi fyrir Viðreisn síðastliðið vor. Frumvarpið vakti mikið umtal og athygli og ég fagna því að við séum enn að ræða allar hliðar málsins. Þar spilar Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð stórt hlutverk.

Viðreisn er flokkur sem stendur fyrir mannréttindum og frelsi og ég mun halda áfram að leggja áherslu á þetta mál nái ég kjöri 30. nóvember 🧡