Vetur íhalds eða frelsis?

Alþingi Íslendinga er komið aftur á fullt skrið eftir sumarið (sem kom reyndar aldrei á höfuðborgarsvæðinu) og ríkisstjórnin er búin að birta þingmálaskrá sína. Stefnuræða forsætisráðherra er að baki sem og umræður um hana. Þær umræður báru þess greinilega merki að forystufólk allra flokka á þingi er komið í kosningaham, enda má búast við því að Alþingiskosningar fari fram annað hvort í vor eða næsta haust.

Engan skyldi undra að stjórnmálaleiðtogar séu með hugann við næstu kosningar, enda munu þær skipta gríðarlegu máli fyrir íslenskt samfélag. Ekki er við öðru en að búast að íhaldssöm þingmál líti dagsins ljós á Alþingi í vetur, hvort sem þau koma frá ríkisstjórninni eða óbreyttum þingmönnum.

Þess vegna er ákaflega brýnt að frjálslynt þingfólk, sama úr hvaða flokki, missi ekki sjónar á gildum sínum og leyfi þessum málum ekki að fljóta í gegnum þingið án mótspyrnu. Jafnvel þótt það sé svokallaður kosningavetur, fólk sé á ferð og flugi um landið, og hugsi meira um framtíðina en nútímann.

Frjálslynd öfl á Alþingi ættu, og þurfa, að láta í sér heyra þennan kosningavetur. Frelsið þarf að vera í forgrunni, og frjálslynt þingfólk verður að berjast fyrir frelsishugsjónum svo íhaldið verði ekki ofan á í enn eitt skiptið þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Hvort sem það verður í vor eða næsta haust.

Greinin birtist fyrst á Karpinu 13. september 2024.